08.04.2012 20:16
Við vorum á Íslandi í janúar og nutum lífisins í fjallaferðum og faðmi fjölskyldunnar. Okkur kom á óvart hversu illa heill mánuður dugði til að hitta þá sem okkur langaði að hitta, náðum því sko alls ekki alveg. Okkur tókst þó að komast í tvær fjallaferðir, flytja verkstæðið okkar yfir í annað húsnæði, passa barnabörn og svona aðeins að hitta fólk en mánuðurinn leið hratt og fyrr en varði var kominn tími til að fara heim.
Við komum heim 1. febrúar og síðan hefur verið svona frekar rólegt hjá okkur, við höfum alveg náð að hemja okkur í heimavinnunni að mestu leyti. Það var ekki fyrr en núna þegar voraði að við höfum farið af stað í garðvinnuna af fullum krafti. Við fengum hjálp og kennslu í að snyrta til ávaxtatrén og síðan höfum við verið að hamast við að fækka trjám og runnum í garðinum. Heiðar eignaðist keðjusög og hefur verið óþreytandi við garðvinnuna síðan. Það er meiningin að reyna að fá smá rækt í garðinn í sumar svona með því að taka húsið í gegn að utan. Við skruppum til Bergen um páskana, ætlunin var nú að reyna að komast til Volda sem er lengra norður í landi en þegar viftureimin bilaði þorðum við ekki lengra en til Bergen svo að við eyddum í staðinn tveimur dögum hjá Palla og Dóru í góðu atlæti.
We spent January in Iceland, happily visiting with family, friends and recharging ourselves in the Icelandic mountains. The month flew by really fast and we didn't get to visit everybody on our visiting list but we will find a way next time.
We came home on February 1st and the time since then has been rather quiet and uneventful, unlike us. Spring is upon us and now we have made ourselves busy with the garden, we have had help with trimming the fruit trees and Heiðar has been really willing working the garden since he got his new chainsaw, the garden as we know it is disappearing fast. The plan is to work on the future look of the garden this summer as well as renewing the roof of the house and painting the exterior.
Easter was nice although we didn't get to travel as far as we planned, the generator belt broke so we stayed with friends in Bergen for two days and got back home. It was very nice though.
Skrifað af Barbara Ósk Ólafsdóttir